Samband íslenskra sveitarfélaga segir ríkið brjóta rúmlega ársgamalt samkomulag um sérhæfða þjónustu við börn með fjölþættan vanda með því að endurskilgreina hópinn sem fellur undir samkomulagið. Sambandið segir kostnað hafi verið meiri en ríkið hafi gert ráð fyrir.Samkomulagið, sem gert var milli ríkis og sveitarfélaga í mars 2025, kveður á um að ríkið taki að sér framkvæmd og beri ábyrgð á fjármögnun sérhæfðrar þjónustu við börn með fjölþættan vanda sem búsett eru utan heimilis.Samkvæmt yfirlýsingu frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga hafa þessi börn verið um 35 að jafnaði, en að með nýrri reglugerð hafi ríkið einhliða endurskilgreint og þrengt hópinn sem fellur undir samkomulagið.„Settar eru kerfislegar skorður sem útiloka börn frá aðgengi í viðeigandi úrræði þar sem ríkið stendur strau