Fólk sem dvaldi á fósturheimilinu Gauksstöðum í Garði er ósátt við að tímarammi rannsóknar íslenska ríkisins á fósturheimilum nái ekki lengra fram í tímann en til ársins 2002. Tímamörk rannsóknarinnar miðast við gildistöku nýrra barnaverndarlaga þetta ár. Lagafrumvarp um að skipa rannsóknarefndina var samþykkt nú í þinglok þann 19. júní.Fósturheimilið Gauksstaðir var starfandi í bænum Garði á Suðurnesjum á árunum 2009 til 2019 þegar heimilinu var lokað eftir að lögreglurannsókn hófst á því vegna meintra brota á lögum um barnavernd. Rannsóknin var felld niður árið 2021 vegna fyrninga á meintum brotum og vegna þess að brotin þóttu ekki líkleg til sakfellingar.Skipun rannsóknarnefndarinnar byggir á umræðu sem hófst í samfélaginu í febrúar eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur greindi frá