Umhverfisráðherra segir utanvegaakstur á hálendinu ólíðandi. Vinna sé hafin í ráðuneytinu í samráði við Náttúruverndarstofnun sem miðar að því að herða viðurlög við brotum af þessu tagi.Lögreglan á Suðurlandi hefur sektað ferðamenn sem staðnir voru að stórfelldum utanvegaakstri um helgina. Ferðamennirnir óku á tveimur Land Rover-jeppum og eru sagðir hafa spænt upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsmálaráðherra, segir brýnt að taka fastar á brotum sem þessum.„Það er auðvitað algjörlega óþolandi og óverjandi að gengið sé svona um landið okkar. Mér finnst það augljóst að fjárhæðirnar endurspegli engan veginn þann skaða og alvarleika þessara brota og kostnaðinn sem hlýst af því að koma landslaginu aftur í fyr