Bríet Sigríður Karlsdóttir, 24 ára, og móðir hennar Anna Jörgensdóttir hafa biðlað til almennings í leit sinni að poka sem Bríet á og týndist eða var tekinn í misgripum á 17. júní. Í pokanum var þjóðbúningur sem hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir Bríeti þar sem tengdamóðir hennar saumaði hann frá grunni. Bjóða mæðgurnar 200 þúsund króna fundarlaun.DV greindi frá á mánudag, en enn hefur búningurinn ekki skilað sér.