Safnstjóri Gerðarsafns gerir alvarlega athugasemd við niðurrif á iðnaðarhúsi að Dugguvogi 42 við Sæbraut þar sem til stendur að gera tímabundna hjáleið fyrir umferð á framkvæmdatíma Sæbrautarstokks. Ástæðan er listaverk Gerðar Helgadóttur sem steypt er í vesturvegg hússins.