Safnstjóri Gerðarsafns segir gríðarleg menningarverðmæti í húfi verði Dugguvogur 42 rifinn og byggingunni fargað. Á vesturvegg byggingarinnar eru steypt lágmyndarverk listamannsins Gerðar Helgadóttur frá 1971 til 1972.Í bréfi frá Brynju Sveinsdóttur, forstöðumanni Gerðarsafns, er alvarleg athugasemd gerð við áformin. Þar segir að ótækt sé að byggingunni verði fargað fyrir tímabundna lausn fyrir umferð, en til stendur að rífa bygginguna til að koma fyrir tímabundinni hjáleið fyrir umferð á meðan framkvæmdir við Sæbrautarstokk standa yfir.Borgarsögusafn hefur áður lagt til að byggingin hljóti vernd í rauðum flokki og safnstjóri Gerðarsafns segir að færa þurfi sterkari rök fyrir þessari óafturkræfu framkvæmd.„Verkið er talið fyrsta steinsteypta lágmyndin sem unnin er á byggingu í Reykjavík og