Guðmundur Andri færist nær FH

Guðmundur Andri Tryggvason er, samkvæmt heimildum Fótbolta.net, nálægt því að ganga til liðs við FH frá KR. Hann er samningsbundinn KR til ársins 2029 og því ljóst að FH þarf að greiða fyrir leikmanninn. Þór, ÍBV og Keflavík hafa jafnframt verið orðuð við Guðmund. Skyldi Guðmundur fara í FH myndi hann feta í fótspor föður síns, Tryggva Guðmundssonar, sem gerði garðinn frægan með Fimleikafélaginu á sínum tíma.
Guðmundur Andri færist nær FH

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd