Yfirvöld í Frakklandi hafa staðfest ebólusmit í landinu. Læknir, sem var nýkominn aftur til Frakklands frá Lýðstjórnarlýðveldinu Kongó þar sem hann hafði verið við mannúðarstörf, greindist með ebólu. Hann var strax fluttur á sjúkrahús, að sögn heilbrigðisráðuneytis Frakklands. Ástand hans er stöðugt.Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu segir að stjórnvöld vinni að smitrakningu en almenningi stafi ekki hætta af smitinu. Ebólufaraldur hefur geisað í Kongó undanfarnar vikur. Yfir 260 manns hafa látist og yfir þúsund greinst með sjúkdóminn.Heilbrigðisstarfsfólk er sérstaklega útsett fyrir ebólusmiti. Sjúkdómurinn smitast með beinni snertingu við blóð eða aðra líkamsvessa. Þetta afbrigði, bundibugyo-veiran, greindist fyrst 2007 og ekki er til neitt bóluefni við því.