„Orkureiturinn í Reykjavík er fyrsta stóra verkefnið sem er Svansvottað og strax við hönnun var unnið með hermilíkan um hvernig sól og birta fer um íbúðirnar til þess að ná stífustu kröfum sem eru um dagsbirtuvottun. Þannig að þessi umræða sem hefur verið um birtustig íbúða á þéttingarreitum á ekki við um okkur þar sem við tókum þetta upp strax á hönnunarstigi.“