Samfylkingin nýtur mest fylgis allra flokka en Sjálfstæðisflokkurinn er í sókn samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu sem Sýn greindi frá.Ríkisstjórnarflokkarnir mælast samtals með 41,7 prósenta fylgi, sem er minnsta fylgi sem þeir hafa mælst með í könnunum Maskínu síðan þeir tóku við stjórn.25,2 prósent myndu kjósa Samfylkinguna og 22,7 prósent Sjálfstæðisflokkinn. Fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst um tæp þrjú prósent milli kannana.Tveir aðrir flokkar mælast með yfir 10 prósenta fylgi. Það eru Miðflokkurinn með 14,2 prósent og Viðreisn með 12,4 prósent. Framsókn fengi 8,5 prósent atkvæða og Vinstri græn 5,4 prósent.Aðrir flokkar mælast utan þings, þar á meðal Flokkur fólksins með 4,1 prósent. Maskína gerði könnunina 2. til 11. júní. 1700 tóku afstöðu til flokka.