Í dag er útlit fyrir hæga breytilega átt, rigningu með köflum í flestum landshlutum og hita allt að 17 stigum. Á morgun er von á óstöðugu lofti með skúrum og hvessir aðeins, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Lægð sem er stödd við Vestmannaeyjar þokast hægt og rólega til norðausturs í dag. Hæg breytileg átt og rigning með köflum í flestum landshlutum, en þurrt að kalla á Vestfjörðum. Vestlæg átt 3-8 m/s síðdegis. Stöku skúrir á vesturhelmingi landsins, en annars skýjað að mestu og sums staðar dálítil væta. Hiti 10 til 17 stig yfir daginn.Á morgun kemur óstöðugt loft til okkar. Skúrir víða um land, en bjart að mestu austast á landinu. Hvessir um hádegi, suðvestan 8-13 m/s síðdegis. Hiti breytist lítið.Suðvestanátt með skúraleiðingum heldur áfram á föstudag, en