Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í gærkvöld ályktun þess efnis að Bandaríkjaforseti stöðvi hernaðaraðgerðir í Íran. Tillagan var samþykkt í fulltrúadeild þingsins fyrr í mánuðinum en repúblikanar fara með meirihluta í báðum deildum.Fjórir öldungadeildarþingmenn úr röðum repúblikana greiddu atkvæði með tillögunni. Það þykir til marks um auknar áhyggjur af frekari átökum og af afdrifum vopnahléssamkomulagsins frá því í apríl.Ályktunin er þó aðeins táknræn. Hún ratar ekki á borð forsetans til undirritunar og bindur því ekki hendur hans. Með ályktuninni sendir þingið aftur á móti skýr skilaboð umNiðurstaðan er auk þess ákveðið pólitískt áfall fyrir Trump sem hingað til hefur notið nær einróma stuðnings þingmanna Repúblikanaflokksins.Búist er við því að ríkisstjórn Trumps óski bráðlega ef