Jarðskjálfti 3,3 að stærð í grennd Húsafells

Jarðskjálfti af stærðinni 3,3 varð rétt norðveestur af Þórisjökli laust eftir miðnætti. Nokkrir minni eftirskjálftar hafa mælst.Jarþrúður Ósk Jóhannesdóttir, náttúruvársérfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir engin merki um gosóróa. Allt sé með kyrrum kjörum og ekkert bendi til þess að þarna fari að gjósa í bráð.Hún segir skjálftann í takt við aukna virkni sem verið hefur á milli Þórisjökuls og Oks á síðustu vikum. Hún tók að aukast í byrjun maí. 3. júní síðiastliðinn urðu skjálftar af stærðinni 3,9 og 3,3 á þessu sama svæði.
Jarðskjálfti 3,3 að stærð í grennd Húsafells

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd