Á fætur í Fjarðabyggð hvetur fólk á fætur

Gönguvikan „Á fætur í Fjarðabyggð“ stendur nú sem hæst. Þar er gengið á fjöll á daginn og svo slá göngugarpar upp kvöldvökum þegar degi fer að halla. Ein slík var haldin á Borgarsandi á Hólmanesi á milli Reyðarfjarðar og Eskifjarðar í kvöld.Þetta er í 19. skipti sem gönguvikan fer fram. Í 8 daga í röð er farið í bæði langar og stuttar gönguferðir og endað á kvöldvöku á hverju kvöldi.Markmiðið með gönguvikunni er að fá fólk í Fjarðabyggð á fætur segir skipuleggjandi. Þeir sem ganga á fimm valin fjöll í vikunni fá verðlaun og sömuleiðis eru verðlaun fyrir þá yngri og eldri sem fara í allar stuttu gönguferðirnar.
Á fætur í Fjarðabyggð hvetur fólk á fætur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd