Fasteignafélagið Heimar hefur ákveðið að taka upp gjaldskyldu við verslunarmiðstöðina Smáralind í Kópavogi á næstunni. Aðsókn í Smáralind hefur aukist verulega á síðustu árum og hafa stæðin við bygginguna í vaxandi mæli verið nýtt til langtímadvalar.