Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst í nótt sprengjuhótun í gegnum Neyðarlínuna. Var því þar haldið fram að sprengjubúnaði hefði verið komið fyrir í öðru hvalveiðiskipi Hvals hf. og yrði búnaðurinn virkjaður ef hvalveiðum yrði framhaldið. Frá þessu greinir RÚV í kvöld en lögregla hefur nú málið til rannsóknar.