Leiðsögumaður við Kötlujökul kom að frönskum ferðamönnum, þar sem þeir höfðu fest sig í sandbleytu, við utanvegaakstur 16. júní.Mönnunum var gerð grein fyrir því að þeir væru að fremja lögbrot með akstrinum og málið var tilkynnt lögreglu.Tveimur dögum síðar kom annar leiðsögumaður að mönnunum við Emstruleið.Ingibjörg Eiríksdóttir er leiðsögumaður og trússi á hálendinu.Hún vill harðari refsingar við brotum og gefur lítið fyrir skýringar frönsku ferðamannanna um að þeir hafi ekki vitað að utanvegaakstur þeirra varðaði við lög.Hún segir að heilt yfir þurfi að auka fræðslu bæði til ökumanna og lögreglu.Að hennar mati ætti að halda námskeið um akstur á hálendinu fyrir alla þá sem leggja leið sína þangað.