Þjóðgarðsvörður segir tónleikahátíðina Bergmál hafa gengið nokkuð vel fyrir sig um helgina og grasflatirnar komi vel undan viðburði. Stór rýnifundur verði haldinn á morgun og svo rýni þjóðgarðsnefnd það í sumar og haust hvort tilefni sé til að halda fleiri viðburði í garðinum.