Hótun gegn hvalveiðiskipum metin ótrúverðug

Fyrstu tveimur langreyðum hvalveiðitímabilsins var landað í nótt og er von á þeirri þriðju til löndunar í kvöld. Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst símtal í nótt, þar sem hótað var að sprengja annað hvalveiðiskipið ef hvalveiðum yrði framhaldið. HÓTUÐU AÐ SPRENGJA ANNAÐ HVALVEIÐISKIPIÐ Hvalveiðiskipið Hvalur 9 landaði langreyðunum tveimur á fimmta tímanum í nótt og sigldi svo aftur út til veiða. Hvalur 8 er svo væntanlegur að landi um klukkan átta í kvöld með eina langreyði sem var skotin í gær.Fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra barst sprengjuhótun í gegnum Neyðarlínuna um klukkan fjögur í nótt. Þar var tilkynnt að búið væri að koma fyrir einhvers konar sprengjubúnaði um borð í öðru skipinu og því hótað - að hann yrði virkjaður ef hvalveiðum yrði framhaldið. Fréttastofu RÚV
Hótun gegn hvalveiðiskipum metin ótrúverðug

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd