Það eru ekki allir hrifnir af grein skáldsins og rithöfundarins Hannesar Péturssonar, greinin hans á Vísi hefur vakið mikla athygli í dag og hafa margir stigið fram til að hvetja fólk til að lesa hana, þar á meðal Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Ólafur Stephensen, Sigmar Guðmundsson og Davíð Þór Björgvinsson. Sigurður Már Jónsson blaðamaður og fyrrum upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar spyr á Facebook: „Hvaða nýjar upplýsingar færir hún okkur um kosti og galla aðildar að ESB?“