Viðgerð hafin á slysagildru í Grafarvoginum

Ráðist hefur verið í viðgerð á illa farinni gangstétt í Grafarvogi, þar sem kona á tíræðisaldri féll úr hjólastól um helgina.Ítrekað hafði verið varað við þeirri slysagildru sem gangstéttin var en nú hefur viðgerð verið hafin.Soffía Jóhannesdóttir, sem er búsett á elliheimilinu Eir í Grafarvogi, var á leið í klippingu með dóttur sinni, Sigurlaugu Björk Guðmundsdóttur sem ók hjólastólnum, þegar hún féll fram fyrir sig á djúpri sprungu í gangstétt við Langarima. Ættingjar Soffíu Jóhannesdóttur, konunnar sem féll fram fyrir sig á gangstéttina, þakka fyrir að ekki hafi verr farið.
Viðgerð hafin á slysagildru í Grafarvoginum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd