„Það er eiginlega bara varla hægt að anda“

Steikjandi hiti er víða í Evrópu vegna hitabylgju. Rauð, appelsínugul og jafnvel fjólublá viðvörun hefur verið gefin út víða vegna hitans. Fólk hefur týnt lífi í ám og vötnum þegar það hefur reynt að kæla sig.Í Frakklandi hafa að minnsta kosti 40 drukknað í ám og vötnum undanfarna daga. Yfirvöld biðja fólk að vera ekki að stinga sér til sunds á eftirlitslausum svæðum. Í gær fundust tvö börn, tveggja og fjögurra ára, látin í bifreið foreldra sinna í bæ í Suður-Frakklandi. Dánarorsök hefur ekki verið staðfest en talið er líklegt að börnin hafi dáið úr hita.Og það versta er ekki enn yfirstaðið. Á Ítalíu er búið að gefa út rauða viðvörun í fimmtán borgum. Sams konar viðvörun er í gildi víðast hvar á Spáni og í Frakklandi. Í Suður-Englandi gæti hiti náð 38 stigum á næstu dögum og varað er við h
„Það er eiginlega bara varla hægt að anda“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd