Felldi úr gildi byggingarleyfi Samhjálpar á Grensásvegi

Samhjálp fær ekki að koma fyrir kaffistofu við Grensásveg 46. Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála felldi úr gildi samþykkt umsóknar Samhjálpar um að endurinnrétta húsið fyrir nýja kaffistofu í dag.Byggingarfulltrúinn í Reykjavík gaf Samhjálp byggingarleyfi til að innrétta veitingastað í húsinu í mars. Starfsemin hefur verið á hrakhólum síðan í september þegar hún flutti úr húsnæði sínu í Borgartúni. Samhjálp tók húsnæðið við Grensásveg 46 á leigu í fyrra en þar er einnig kjötverslun, tannlæknastofa og íbúðir.Margir íbúar hverfisins hafa gert athugasemdir við nýja staðsetningu kaffistofunnar og það voru nágrannar sem kærðu samþykkt byggingarleyfisins til úrskurðarnefndarinnar. Í kærunni var einkum vísað til áhyggja af mögulegum áhrifum starfseminnar á nærumhverfi, börn í hverfinu og f
Felldi úr gildi byggingarleyfi Samhjálpar á Grensásvegi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd