Nefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti skilar auðu

Dómnefnd sem er falið að meta hæfni umsækjenda um embætti dómara telur að þeir fjórir sem sóttu um laust embætti hæstaréttardóma séu jafnhæfir.Umsækjendurnir eru Aðalsteinn E. Jónasson , Ásgerður Ragnarsdóttir, Eiríkur Jónsson og Eyvindur G. Gunnarsson, öll dómarar við Landsrétt.Í 36 blaðsíðna umsögn dómnefndar er niðurstaðan sú að ekki sé hægt að gera upp á milli þeirra.Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur því nokkuð frjálsar hendur um það hvern hún ákveður að verði skipaður. Lögum samkvæmt má ekki ganga gegn mati hæfnisnefndar nema með samþykki Alþingis. Séu margir metnir jafnhæfir getur ráðherra þó valið á milli þeirra.RÚV / Ari Páll Karlsson
Nefnd um hæfni umsækjenda um dómaraembætti skilar auðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd