Bændasamtök Íslands hafa ákveðið að boða til aukabúnaðarþings vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald viðræðna við ESB. Formaður samtakanna segir að verið sé að keyra risastórt pólitískt mál í gegnum samfélagið um hásumar og ráðamenn þjóðarinnar hafi ekki útskýrt af hverju.Á Búnaðarþinginu í mars var skipuð milliþinganefnd til að greina áhrif aðildar Íslands að Evrópusambandinu á íslenskan landbúnað og stöðu bænda. Niðurstöður þeirrar nefndar verða kynntar í sumar og síðan ræddar á aukabúnaðarþingi 14. ágúst og afstaða samtakanna gerð opinber. RISASTÓRT PÓLITÍSKT MÁL Trausti Hjálmarsson formaður Bændasamtaka Íslands segir að samtökin séu ekki að álykta gegn þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. „Þetta er bara risastórt pólitískt mál sem er verið að keyra hérna á samfélagið okkar á Ísla