Gat á eldiskví í Reyðarfirði - engin staðfest strok

Gat fannst á eldiskví í Reyðarfirði í seinustu viku. Samkvæmt upplýsingum frá Karli Steinari Óskarssyni, fagstjóra fiskeldis hjá Matvælastofnun, eru engin staðfest strok úr kvínni.Matvælastofnun barst tilkynning um gatið og lagði Fiskistofa út net samkvæmt verkferlum. Enginn strokulax kom í netið. Gatið á kvínni var smátt og miðað við meðalstærð fiska telur Karl afar litlar líkur á að fiskur hafi strokið úr kvínni.Sjókvíin er í eigu Kaldvíkur við Sigmundarhús á Reyðarfirði. Samkvæmt Austurfrétt tilkynnti Kaldvík tjónið til Fjarðabyggðar og eftirlitsaðila. Gatinu, sem var neðarlega á kvínni, var lokað samstundis.Karl segir að þó að líkurnar á stroki séu afar litlar sé aldrei hægt að útiloka neitt. Hafi fiskur sloppið leiti hann ekki strax upp í ár í sumar heldur haldi sig í sjó. Lifi þeir v
Gat á eldiskví í Reyðarfirði - engin staðfest strok

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd