Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir stórfelld brot í nánu sambandi og barnaverndarlagabrot á tímabilinu 1. desember 2022 til 14. janúar á þessu ári.Maðurinn er sakaður um að hafa dagana 6.-7. janúar á þessu ári, á heimili fjölskyldunnar, slegið og sparkað fjölmörgum sinnum í höfuð, búk og útlimi konunnar, auk þess að hafa tekið hana hálstaki, ýtt henni upp að vegg og þrengt að hálsi hennar, allt þar til hún féll í gólfið.