Foreldrarnir upplifðu stundina merkilegu með Arnari Bjarka - „Þetta er ekki ódýrt nafn"

„Hann hefur klárað nokkrum sinnum svona í Fífunni, skotið nokkrum sinnum á markið þar," segir fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Gunnleifur Gunnleifsson um mark sonar síns gegn KA á sunnudagskvöld. Arnar Bjarki Gunnleifsson, sem verður ekki 16 ára fyrr en seinna á þessu ári, skoraði sitt fyrsta mark í Bestu deildinni gegn KA. Hann innsiglaði sigur Breiðabliks með þriðja marki liðsins í fyrsta byrjunarliðsleik sínum fyrir Breiðablik. „Hann hefur lagt sig gríðarlega mikið fram í vetur. Hann á framtíðina fyrir sér og ég er þakklátur fyrir hans hönd að hann sé að uppskera," sagði þjálfarinn hans, Ólafur Ingi Skúlason, við Fótbolta.net eftir leikinn.
Foreldrarnir upplifðu stundina merkilegu með Arnari Bjarka - „Þetta er ekki ódýrt nafn"

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd