Daníel Freyr Kristjánsson er genginn í raðir Lyngby frá Midtjylland. Hann skrifar undir fjögurra ára samning við félagið, til sumarsins 2030. Daníel er tvítugur vinstri bakvörður sem er uppalinn í Stjörnunni. Hann var keyptur til Midtjylland þegar hann var sextán ára, 2022 en Daníel hefur leikið á láni hjá Fredericia undanfarin tvö tímabil.