Ekki er hægt að sjá staðsetningu hvalveiðiskipanna Hvals 8 og Hvals 9 eins og flestra skipa því slökkt er á sjálfvirku auðkenniskerfi þeirra. Í undantekningartilfellum má grípa til þessa ráðs ef skipstjóri skips telur það nauðsynlegt í þágu öryggis eða verndar þess.Samkvæmt svari Landhelgisgæslunnar við fyrirspurn fréttastofu höfðu forsvarsmenn Hvals hf. samband við Gæsluna og tjáðu henni að skipin myndu nýta sér umrædda heimild. Þau senda þess í stað stjórnstöð Landhelgisgæslunnar skeyti í gegnum gervihnött á klukkustundar fresti um staðsetningu sína.Lög kveða á um að öll íslensk fiskiskip skuli vera búin sjálfvirku auðkenniskerfi sem á alltaf að vera í gangi nema skipstjóri telji annað nauðsynlegt. Það er skipstjóra að taka ákvörðun um hvort skip nýti undanþáguna og er hún ekki háð leyfi