Forsvarsmenn gagnaversins Borealis Data Center eru stórhuga í uppbyggingu á Blönduósi í Húnabyggð. Stefnt er á allt að hundrað milljarða uppbyggingu á næstu árum. Það var staðfest í dag þegar að Landsvirkjun og Borealis kynntu nýjan langtímasamning um kaup á 12 megavöttum af raforku, til viðbótar við núverandi kaup gagnaversins.„Okkar fjárfesting í gagnaverinu og gagnaversinnviðum sem núna er í vinnslu er um 20 milljarðar. En ef þú bætir tölvunum við er hægt að fjór- eða fimmfalda þá upphæð,“ segir Björn Brynjúlfsson, forstjóri Borealis. ÞRÓUN GERVIGREINDAR EYKUR EFTIRSPURN Gagnaver á Íslandi veita gervigreindarfyrirtækjum þjónustu í síauknum mæli og ekki sér fyrir endann á þeirri eftirspurn. „Þegar fólk er að biðja ChatGPT um einhver ráð eða fara yfir einhver skjöl fyrir sig er verið a