10 ár frá Brexit-atkvæðagreiðslunni

Tíu ár eru frá þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem Bretar kusu um hvort þeir ættu að vera áfram í Evrópusambandinu eða yfirgefa það. Eins og flestum er kunnugt ákvað meirihluti Breta að yfirgefa sambandið. Útgangan tók formlega gildi klukkan ellefu um kvöld 31. janúar 2020.Stuðningsmenn þess að yfirgefa sambandið hétu fullveldi, styrkingu breska pundsins, efnahagslegu sjálfstæði og því að brjóta niður óþarfa skriffinnsku.Greinendur og sérfræðingar eru flestir sammála um að á þessum tíu árum hafi hagkerfi Bretlands minnkað meira en það hefði gert ef landið hefði kosið að vera áfram í Evrópusambandinu. RÚMLEGA HELMINGUR BRETA TELUR ÚTGÖNGU ÚR ESB HAFA VERIÐ MISTÖK Samkvæmt nýrri könnun frá YouGov telja 57 prósent Breta að það hafi verið mistök að yfirgefa sambandið en 30 prósent telja það ekki
10 ár frá Brexit-atkvæðagreiðslunni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd