Finnska þingið hefur samþykkt umdeilda breytingu á áfengislögum. Með breytingunni verður netsala áfengis heimiluð, þar á meðal á sunnudögum.Ríkisstjórnin sem tók við í Finnlandi 2023 lofaði að létta hömlum af áfengissölu í landinu, en frumvarpið hefur verið mjög umdeilt síðan það var fyrst lagt fram 2024. Gagnrýnendur segja ný lög geta ýtt undir áfengisneyslu og haft slæm áhrif á lýðheilsu. Frumvarpið var að lokum samþykkt með 98 atkvæðum gegn 77 í finnska þinginu í dag.Í Finnlandi má áfengi með yfir 8% aðeins selja í ríkisreknum Alko-verslunum og á veitingastöðum með vínveitingaleyfi, að þeim skilyrðum að áfengisins sé neytt á staðnum. Verslanir mega selja áfenga drykki með vínanda undir 8%.Það breytist ekki með nýju lögunum, en þó má Alko nú hafa opið á sunnudögum og heimilt verður að le