„Þessu verður ekki lýst öðruvísi en sem villimannslegum veiðum sem eiga sér enga stoð í nútímanum,“ segir í yfirlýsingu sem Dýraverndarsamband Íslands sendi frá sér vegna hvalveiða. En í nótt var fyrsta langreyðurin í tvö ár veidd við Ísland. Tvær langreyðar voru veiddar af hvalveiðiskipinu Hvali 9. Sambandið segist harðlega mótmæla veiðunum sem það kallar „ómannúðlegar og með öllu tilgangslausar út...