Sjáðu sturlað mark Dagbjarts í Breiðholti

Hinn tvítugi Dagbjartur Búi Davíðsson skoraði eitt af mörkum tímabilsins í Lengjudeildinni síðastliðinn sunnudag er Völsungur gerði 4-4 jafntefli við ÍR á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti. Leikurinn sjálfur hafði verið einstök skemmtun og setti Dagbjartur kirsuberið ofan á kökuna þegar hann jafnaði metin með viðstöðulausu skoti á lofti fyrir utan teig.
Sjáðu sturlað mark Dagbjarts í Breiðholti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd