Laxey í Vestmannaeyjum hefur lokið við hlutafjárútboð upp á samtals 6,7 milljarða, einkum leitt af núverandi hluthöfum, sem er ætlað að fjármagna næsta áfanga í uppbyggingu laxeldisfyrirtækisins. Stjórnarformaður Laxey segir það til marks um að félagið sé á „réttri leið“ þegar hlutahafar auki við fjárfestinguna en stærstu lífeyrissjóðir landsins eru á meðal helstu eigenda.