Peter Murrell hefur verið dæmdur í rúmlega fimm ára fangelsi fyrir að draga sér 400 þúsund pund, 67 milljónir króna, frá Skoska þjóðarflokknum. Murrell er fyrrverandi eiginmaður Nicolu Sturgeon, fyrrverandi fyrsta ráðherra Skotlands.Murrell var framkvæmdastjóri flokksins frá 2001 til 20203. Hann var dæmdur fyrir að hafa dregið sér fé yfir tólf ára tímabil frá 2010 til 2022 en mestan hluta þess tíma var eiginkonan formaður flokksins og fyrsti ráðherra.Meðal þess sem hann notaði hið illa fundna fé til að kaupa var lúxushúsbíll, Jagúar-jeppi, Montblanz-pennar, salt- og piparkvörn frá franska merkinu Lalique og 2 kíló af kaffi, að því er segir í frétt Guardian.Við dómsuppkvaðningu sagði Young lávarður að meðal þess sem hann hefði horft til við ákvörðun refsingarinnar væri að láta hana virka se