Ungt fólk beitir kyrkingum í kynlífi í auknum mæli vegna þess að það sér það í klámi, segir Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundnu ofbeldi.„Ég held að þetta sé í rauninni ekkert nýtt en þetta er eitthvað sem er orðið mun algengara en áður. Það sem við erum að sjá er að ungt fólk er mjög mikið að beita kyrkingartaki í kynlífi og það er búið að normalísera það í kynlífi í gegnum klám,“ sagði Guðný í Morgunútvarpinu á Rás 2 í morgun.Hún segir kyrkingar í kynlífi vera eitthvað sem ungt fólk telji sig eiga að gera. „Ef þú ert að neyta kláms þá er búið að normalísera þetta þar ofboðslega mikið.“ ÞARF EKKI MEIRI KRAFT EN TIL AÐ OPNA KÓKDÓS Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa vaxandi áhyggjur af kyrkingartökum, bæði sem hluta af öðru ofbe