Jason Daði Svanþórsson hefur samkvæmt heimildum Fótbolta.net rætt við Víking og þykir nokkuð líklegt að hann endi í Víkinni. Jason Daði (1999) er með lausan samning og hefur verið orðaður við fleiri félög á Íslandi. Félögin sem hafa verið nefnt eru Breiðablik, KR og ÍA. Samningur Jasonar við enska félagið Grimsby er að klárast, hann verður ekki áfram þar og er honum frjálst að ræða við önnur félög.