Nú má aka þyngri rafbílum með almenn ökuréttindi

Með breytingu á reglugerð um ökuskírteini verður ökumönnum með almenn ökuréttindi heimilt að aka rafbílum, án eftirvagns, sem vega allt að 4.250 kílóum í stað 3.500 áður.Eyjólfur Ármannsson undirritaði breytingu á reglugerðinni í gær og nær hún til þeirra sem hafa haft B-réttindi í minnst tvö ár.Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að rafbílar séu oft nokkuð þyngri en sambærilegir bensín- og dísilbílar vegna þungdar á rafhlöðum. Þetta hafi orðið til þess að rafknúnir sendibílar lendi yfir þyngdarmörkum sem geri það að verkum að ökumaður þurfi meirapróf þótt bílarnir væru að öðru leyti sambærilegir hefðbundnum bensín- og dísilbílum.„Það er mikilvægt að regluverkið styðji við fyrirtæki og einstaklinga sem vilja fjárfesta í vistvænni ökutækjum. Nú geta ökumenn með almenn ökuréttindi ekið
Nú má aka þyngri rafbílum með almenn ökuréttindi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd