Leiðtogafundi Evrópusambandsins og Bretlands frestað

Leiðtogafundi Evrópusambandsins og Bretlands sem halda átti í Brussel í næsta mánuði verður frestað vegna afsagnar Keirs Starmer forsætisráðherra Bretlands, og ekki er ljóst hvenær fundurinn verður haldinn.Antonio Costa, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins staðfesti þetta í gær. „Við erum að endurskoða möguleikana á þessum fundi,“ sagði Costa á blaðamannafundi hér í Brussel í gær.Starmer og stjórn hans hafa ítrekað lýst yfir vilja til að endursetja samband Bretlands við Evrópusambandið. Samningaviðræður um aukið samstarf af ýmsu tagi hafa staðið yfir undanfarnar vikur og mánuði; um greiðar viðskipti, til dæmis með landbúnaðarvörur, samþættingu orkukerfa og aukin tækifæri ungs fólks beggja vegna Ermarsundsins til að ferðast og stunda nám í Bretlandi og ríkjum Evrópusambandsins.Á leiðtoga
Leiðtogafundi Evrópusambandsins og Bretlands frestað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd