Vinnumálastofnun ætlar að hætta sértæku átaksverkefni í atvinnumálum á Suðurnesjum um næstu mánaðamót. Gripið var til átaksins í nóvember þegar atvinnuleysi fór yfir 6,5 prósent. Þá var gert ráð fyrir að það gæti staðið yfir í þrjá til fjóra mánuði en raunin var átta mánuðir. Sett var á fót sérstakt atvinnutorg, ráðningarstyrkir veittir og ráðist i önnur verkefni. Atvinnuleysi á Suðurnesjum er aftur komið undir 6,5 prósent og því ekki lengur forsendur fyrir átaksverkefninu, samkvæmt reglum sem gilda um viðbrögð við atvinnuleysi.Almenn ákvæði um vinnumarkaðsúrræði gilda á Suðurnesjum frá mánaðamótum.Horft yfir hluta Reykjanesbæjar.Mynd/Reykjanesbær