Colas á Íslandi hlaut í gær bronsverðlaun á Cannes Lions, virtustu verðlaunahátíð markaðs- og auglýsingaiðnaðarins á heimsvísu, fyrir auglýsingaherferðina ¡Hola! Verðlaunin eru fyrir Nýbreytni á markaði í flokknum Skapandi markaðssetning á fyrirtækjamarkaði og var tilkynnt um þau rétt í þessu. Er þetta einungis í annað sinn sem íslensk herferð hlýtur verðlaun á Cannes Lions án samstarfs við erlendar stofur.