Rauð hitaviðvörun hefur verið gefin út í 15 ítölskum borgum. Þeirra á meðal eru höfuðborgin Róm, Mílanó, Flórens og Feneyjar. Íbúum er ráðlagt að borða léttan mat, halda sig innandyra og spreyja á sig köldu vatni til að kæla sig niður. Ekkert lát er á hitabylgju sem gengur yfir Evrópu.Í gær mældist meðalhiti á landsvísu í Frakklandi 29,2 gráður. Euronews segir þetta þriðja heitasta dag frá upphafi mælinga í landinu. SLÖKKTU Á KJARNAOFNI VEGNA OF HEITS VATNS Kjarnorkuver í Suðvestur-Frakklandi nærri Toulouse slökkti á kjarnaofni í gær vegna þess að vatn úr nærliggjandi á, sem notað er til kælingar í verinu, var orðið of heitt eða 28 gráður. 1.350 skólum var lokað í gær vegna hitabylgjunnar.Samgöngukerfi landsins er undir miklu álagi, en lestarteinar þola ekki hita yfir 50 gráðum. Lestarf