Menningar-, nýsköpunar og háskólaráðuneytið hefur staðfest synjun nefndar um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á umsókn framleiðenda kvikmyndar um endurgreiðslu hluta framleiðslukostnaðar. Byggði synjunin á því að of seint hefði verið sótt um en framleiðendur höfnuðu því og vísuðu meðal annars til þess að framleiðsluferli myndarinnar hefði ekki lokið með frumsýningu í kvikmyndahúsum þar sem í kjölfarið hefði sjónvarpsþáttaröð verið unnin upp úr myndinni.