Rannsókna- og tilraunaskip NATO, NRV Alliance, liggur nú við bryggju í Reykjavík en skipið er komið til landsins til að taka þátt í heræfingu þar sem verður meðal annars reynt á getu ómannaðra tækja til að vakta óvinaferðir á hafi úti. Skipið sigldi til Íslands frá La Spezia á Ítalíu og er það ítalski sjóherinn sem mannar fleyið.