Þingmaður á Evrópuþinginu segir að Ísland yrði Evrópusambandinu ómetanlegt sem aðildarríki og þess vegna verði sambandið að breyta umgjörðinni um inntöku nýrra ríkja. Sýna verði Íslandi og öðrum ríkjum meiri sveigjanleika í mögulegum aðildarviðræðum og koma til móts við óskir þeirra falli þær ekki fulkomlega að regluverkinu.