Austlæg átt og blautt

Austlægar áttir ráða ríkjum á landinu í dag með dálítilli rigningu, en í nótt á að draga úr rigningu og lægja. Hiti verður á bilinu 10 til 16 stig næstu daga, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Í dag verður austlæg átt 3-8 m/s, en 8-13 m/s allra syðst. Dálítil rigning af og til á sunnanverðu landinu, en þurrt norðanlands. Eftir hádegi stöku skúrir norðvestantil og bætir í rigningu sunnanlands í kvöld, en lengst af þurrt á Norðausturlandi. Hiti 11 til 16 stig. Lægir í nótt og dregur aðeins úr vætu.Á morgun verður hæg breytileg átt. Dálítil rigning víða um land, en styttir upp austanlands eftir hádegi. Snýst í vestlæga átt 5-10 undir kvöld og þá styttir einnig upp vestantil. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag og föstudag er útlit fyrir suðvestanátt með skúrum, en
Austlæg átt og blautt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd