Vandamála gætir í íslenskum kvikmyndaiðnaði. Nýverið rötuðu vanskil framleiðslufyrirtækjanna Glassriver og Sagafilm á greiðslum til kvikmyndagerðarmanna í fréttir. Framleiðendur lýsa erfiðleikum við fjármögnun og vekja athygli á því að stærð Kvikmyndasjóðs hafi ekki haldið takti við öran vöxt í greininni hérlendis og segja ástandið óviðunandi. > „Það er atgervisflótti núna úr greininni, það er bara því miður þannig.“ Í þessari umfjöllun er stuðst við viðtöl við fjölda kvikmyndagerðarmanna sem vilja ekki að nafns síns sé getið. Hún byggir þó í meginatriðum á viðtölum við formenn tveggja stéttarfélaga – Félags kvikmyndagerðarmanna og Skerpu: Félags tæknifólks. > „Það er svona að vakna vitund um að það eigi að borga sæmilega fyrir þessa vinnu.“ Það ber að hafa í huga að kvikmyndagerðarmen