„Ég hef lengi haft þann draum að fara í meistaranám í kjarnorkuverkfræði og Frakkland er einn besti staðurinn til að læra það“, segir hin 22 ára gamla Andrea Denisdóttir sem er nýútskrifuð með B.Sc. gráðu í orkuverkfræði og er á leið í mikið ævintýri. Andrea hefur verið með annan fótinn í París þar sem kærasti hennar Styrkár Davíðsson er búsettur þar og hún hefur nú ákveðið að láta drauminn rætast og flytja alveg út.